sunnudagur, desember 24, 2006


Gleðileg jól allir saman !!!!

Já jólin eru komin og allt er svo gaman
á jólunum við gleðjumst og borðum saman
Já jólin eru tíminn sem allir elska að eta
reykt kjöt og sósur sem láta okkur freta......

Smá ljóðræn túlkun í tilefni dagsins :)

Hafið það sem allra best næstu daga og njótið þess að freta í góðra vina hópi ;)
Yfir og út,

JólaVilliFretKötturinn.......

þriðjudagur, desember 12, 2006

Þegar piparkökur bakast.....


Hvort sem þú trúir því eða ekki þá er þetta mynd af piparkökuhúsi sem ég tók í Smáralindinni í gær. Crazy !!!!! Þetta er án efa eitt flottasta piparkökuhús sem ég hef séð, glöggir lesendur sjá að þarna eru um nákvæma eftirlíkingu af Höfða að ræða. Það eru nokkur önnur flott piparkökuhús sem er hægt að skoða þarna og mæli ég með því að allir gefi sér smá tíma í að kíkja á herlegheitin ef þið eigið leið hjá :)


Yfir og út

JólaVilliKötturinn

mánudagur, desember 11, 2006

Fyrsti sveinkinn kominn til byggða....


Í morgun kom Stekkjastaur til byggða, ég verð að viðurkenna að ég gleymdi að setja skóinn minn útí glugga og þarafleiðandi fékk ég ekkert í skóinn.


Allý kom heim úr sumarbústað í fyrradag þar sem hún var alla helgina með vinkonu sinni að skrappa jólakort. Hver veit nema að þú kæri lesandi verðir svo heppinn að fá heimatilbúið jólakort frá okkur Allý þessi jólin :)

Við skelltum okkur á sunnudagskvöldið út að borða á Ítalíu og fórum svo í leikhús á Pétur Gaut. Alveg hreint frábært leikrit, mjög listræn túlkun á Pétri Gaut. Rosalega vel leikið og útfært, við skemmtum okkur allavegana konunglega.


Það var eitt sveinkagigg um helgina og tókst mér næstum að drepa mig í fíflagangi, hörkufjör í sveinkabransanum :)


Yfir og Út
Hurðaskellir JólaVilliKöttur

föstudagur, desember 08, 2006

Já nú er ég sko aldeilis hlussa.....


Ég fékk ansi skemmtilegt símtal um kl. fjögur í dag. Ég tek símann upp og sé að móðir mín sem dvalið hefur erlendis um nokkurt skeið er að hringja svo ég svara og slæ öðrum hlutum á frest þar sem móðir mín er yfirleitt að hringja frá útlöndum. Þegar ég svara spyr móðir mín hvort ég verði lengi í vinnunni í dag og ég tjái henni að ég sé alveg að klára, þá spyr móðir mín mig hvort hún eigi að setja bjór í ísskápinn fyrir mig !!!! Mamma er semsagt komin heim og hún lét engann vita. Snillingur þessi móðir mín !!! Allý hringdi í mig og sagði að pabbi væri hlaupandi um allt heima með bjórdósir í fanginu og að hann væri að skipta á rúminu og setja í þvottavél hahahahahaha !!!! Mamma kann svo sannarlega að koma á óvart, snilld snilld snilld !!!!!


En það eru bara 15 dagar til jóla núna og er maður alveg að springa úr spenningi. Ég hlakka mest til að fá hamborgarhrygg sem er eiginlega uppáhaldsmaturinn minn. Svo er líka bara svo gaman að slaka á í faðmi fjölskyldunnar eins og ég hef sagt áður.


Yfir og út

JólaVilliKötturinn

Ps. Finnst ykkur myndin af okkur bræðrunum og snjókallinum sem við gerðum í snjónum um daginn ekki flott ;)

þriðjudagur, desember 05, 2006

Og hátíð fer í hönd....


Jólin, jólin allstaðar. Já það er sannarlega farið að líða að jólum, aðeins 19 dagar til jóla og styttist óðum í að móðir mín komi heim frá útlandinu. Fyrir ykkur sem ekki vitið hvar móðir mín er þá hefur hún verið í London í allan vetur. Þar leggur hún stund á nám í Art Therapy eða listmeðferð. Jólagleðin gjörsamlega lekur af mér þessa dagana, jólasveinabransinn kominn á fullt og er Hurðaskellir búinn að skella sér á nokkrar jólaskemmtanir. Allý og Sara voru að jólaskreyta í garðinum heima og er húsið farið að verða jólalegt að utan. Kiddý kom svo í heimsókn í gær og hún og Sara bökuðu piparkökur og súkkulaðibitakökur mmmmmmmm.....


Heilsuátakið er að sjálfsögðu fokið útum gluggann eins og alltaf í desember, ætla samt að koma inn af krafti í janúar :) Við drengirnir í heimahópnum héldum gríðarlega veislu í gærkvöldi hjá Gústa. Gústi skaffaði Sushi og framreiddum við það í sameiningu. Að venju voru afgangar sem gætu fætt heilt þorp í Afríku en það er líklega bara af því að Böddi og Pétur voru ekki ;)


Í kvöld er allsvakalegur leikur í Meistaradeildinni, Barcelona - Werder Bremen og verða Eiður og félagar að fara með sigur í þessum leik annars eru þeir dottnir út úr Meistaradeildinni. Væri hreinlega hræðilegt fyrir Meistaradeildina og fótboltann í heiminum svo ekki sé talað um áhorfið á Sýn. Sjálfsagt margir Íslendingar sem munu liggja á bæn yfir leiknum í kvöld veit allavegana að ég ætla ekki fyrir nokkra muni að missa af þessum leik.


Yfir og út og hohohohoho

VilliJólaKötturinn

þriðjudagur, október 17, 2006

Er líða fer að jólum........


Jæja ágætu lesendur, nú fer senn að líða að jólum eða þannig, það eru 67 dagar til jóla og er ég að komast í jólaskapið. Ég verð að viðurkenna að ég er svolítill jólastrákur og ég byrja yfirleitt mjög snemma að hlakka til jólanna. Ég er einn af þeim sem finnst það bara voða vinalegt að jólaösin í verslunum og verslanakjörnum byrji sem allra fyrst. Mér finnst æðislegt þegar jólaljósin eru sett upp í byrjun nóvember til að létta manni lundina í skammdeginu. Það er bara svo gaman að hlakka til einhvers. Hvað er yndislegra en að eiga góðar stundir í faðmi fjölskyldunnar og skapa góðar minningar.


Nú er nóg komið af jólatali í bili !!! Mér langar að byrja á því að óska öllum Liverpool mönnum hjartanlega til hamingju með 10. sætið í deildinni. Í kvöld mæta mínir menn í Manchester United, FC Copenhagen og ætla ég að fylgjast með leiknum. Á morgun er svo annar af stórleikjum vikunnar á Sýn, Chelsea - Barcelona. Eiður okkar mun án efa setja sinn svip á þennan leik og mun maður stilla sér upp í treyjunni fyrir framan sjónvarpið og horfa á leikinn. Svo ég haldi þessu leiðinlega fótboltatali aðeins áfram þá er seinni stórleikurinn á laugardaginn þar sem Barcelona mætir Real Madrid í beinni á Sýn.

þriðjudagur, október 10, 2006

Ný vika ný tækifæri


Í dag er þriðjudagur og fer pössunin á drengjunum vel af stað, ég er byrjaður að reyna að spilla þeim en það gengur ekki alveg nógu vel. Þeir vilja ekki borða inní stofu og fara alltaf tímanlega að sofa. Ég veit ekki hvað skal til bragðs eins og einn góður vinur minn sagði eitt sinn (Jón Örn). Ætli ég reyni ekki að kenna þeim að skilja skítuga sokka og nærföt eftir á eldhúsborðinu næst, vona að það gangi betur.


Við strákarnir í hópnum hittumst í gær og áttum góða stund, það var fámennt en góðmennt. Ég, Arnar, Guðjón og Ingvar vorum heima hjá Guðjóni og ræddum um heima og geima. Rosalega dýrmætt að vera í heimahóp og eiga svona vini sem maður getur treyst.


Landsleikurinn um helgina var hörmulegur og gefur ekki góða von um framhaldið á morgun gegn Svíum. Ég vona svo innilega að strákarnir haldi andliti gegn svíunum og að við töpum ekki of stórt gegn þessu snjalla liði sem lagði einmitt Spánverja 2-0 á laugardaginn.
Ekki var formúlan mikið skárri, maður var farinn að hlakka mikið til lokamótsins og þeirri gríðarlegu samkeppni sem væri um heimsmeistaratitilinn á lokametrunum en búmm !!!! vélin hjá Schuma sprakk og hann datt úr leik þegar 17 hringir voru eftir. Ég fór næstum að gráta og skipti strax yfir á VoD hluta skjásins og horfði á nokkra gamla þætti af Popppunkti.


Over and Out,

OddCat

fimmtudagur, október 05, 2006

Hor slef og hóstasaft


Í dag er þriðji og vonandi síðasti dagurinn sem ég eyði heima með nefrennsli og klósettrúllu í hönd. Við hjónin erum búin að vera að snýta hvort öðru og hóst í skiptis, hefur verið sérstaklega góður tími :) Það eru eflaust fleiri í sömu sporum og við þar sem hin alræmda haustflensa er að láta kræla á sér þessa dagana. Um helgina fara tengdaforeldrar mínir til Bandaríkjanna og verðum við Allý ábyrg fyrir bræðrum hennar á meðan þau eru úti, hehehehehe. Ég ætla að kenna þeim eitthvað ógeðslegt sem þeir geta notað þegar mamma og pabbi koma heim. Nei ég segi svona maður verður nú að reyna í veikum mætti að vera þeim góð fyrirmynd, ég á bara svo erfitt með að hemja barnaskapinn í mér þegar ég er innan um yngri menn. Jasser getur vitnað um það eftir skemmtilegt mót um síðustu helgi. Ég fékk að upplifa það að vera unglingur aftur í smástund, ég var næstum búinn að gleyma því hvað það er gaman. Ég svaf líklega minnst af öllum á þessu móti þar sem ég lá á spjalli við herbergisfélaga mína langt fram eftir öllu og þurfti náttúrulega að vera ábyrgur og mæta á góðum tíma í morgunmat ;)


Um helgina er spennandi landsleikur og verður maður náttúrulega að gefa sér góðan tíma til að horfa á hann. Ég treysti á að Íslendingar sigri Letta í Lettlandi, áfram Ísland.


Jæja ég nenni bara ekki að blogga meira,

VilliKjettan

fimmtudagur, september 28, 2006

Hello hello

Sæl veriði elskurnar mínar. Það er aldeilis orðinn langur tími síðan ég bloggaði síðast, spurning hvort maður fari eitthvað að reyna að taka sig á í þessu. Ég var að horfa á fyllingu Hálslóns á Vísi.is áðan, þetta er alveg magnað mannvirki þessi stífla. Ég hef eiginlega ekki myndað mér almennilega skoðun á þessu, ég held að ég sé einn af þeim sem horfir á þetta útfrá byggðarsjónarmiðunum þannig að ég er eiginlega bara sáttur við þessa framkvæmd að mestu leyti. Ég set samt smá spurningamerki varðandi framtíð þessa alls, eins og ég hef td. heyrt að hálslónið verði orðið fullt af drullu eftir 60 ár og þá verði ekki lengur hægt að nota þessa virkjun. Eins hafa menn velt fyrir sér hver hin raunverulegu áhrif á svæðið fyrir austan muni verða, þegar öllum framkvæmdum verður lokið hverfur allur þessi fjöldi vinnumanna í burtu og við tekur 450 manna álver sem þarf að reyna að manna með fólki af svæðinu. Efast stórlega að það náist og því mun þetta líklega fyllast af vinnuþyrstum Pólverjum sem eru orðnir þreyttir á að skúra undan okkur skítinn. En eins og ég segi þá vil ég reyna að horfa á björtu hliðarnar á þessu máli og vona innilega að þetta eigi eftir að blessast allt saman á endanum. Álverið á eftir að skila miklu fyrir austfirðinga og nærsveitamenn. Ég er samt sem áður þeirrar skoðunar að ég vil alls ekki fleiri álver á Íslandi. Ég er ansi hræddur um að nú sé komið nóg og að við ættum alvarlega að fara að reyna að finna einhverja aðra aðferð til að skapa atvinnu á landsbyggðinni. Það verður ekkert sérstaklega gaman ef við erum með öll egginn í sömu körfunni og allt okkar efnahagslíf sveiflast upp og niður eftir því hvernig álverð í heiminum er.

En nóg um álpappír og þess háttar, ég er að fá nýtt pókerspilapeningasett í hendurnar í kvöld og ræð ég mér ekki af spenningi vegna þessa. Svo stendur til að halda mót heima hjá mér á mánudaginn þar sem nýju "chipparnir" verða vígðir við hátíðlega athöfn :)

Heimahópurinn fer hægt af stað þennan veturinn og höfum við verið heldur fáliðaðir síðustu 3 skipti. Nýr meðlimur bættist í hópinn á mánudaginn, hann heitir Alex og er kærastinn hennar Hönnu frænku. Hann býr í sömu götu og ég sem er nokkuð hentugt. Böddi og Pétur eru báðir farnir í nám erlendis, Pétur verður um nokkurra ára skeið í San Fran og Böddi fór til Schweitsch að lesa Biblíuna og höstla sæta(nn) Texas búa ;)

Ætla að skella mér á mót í Vatnaskógi um helgina, þar sem ég mun leiða lofgjörð ásamt Jasseri, Ingu Dóru og vonandi einhverjum fleiri.

Ætla að fara að vinna,
Yfir og út,
VilliKötturinn

fimmtudagur, júní 08, 2006


Belle and Sebastian

Jamm og jæja, hið stórgóða band Belle and Sebastian eru væntanleg til landsins í júlí og að sjálfsögðu skelltum við Allý okkur á miða. Ekki minni manneskja en Emiliana Torrini hitar upp fyrir þau, þannig að það verður enginn svikinn af þessari skemmtun. Það er fátt yndislegra en að skella sér í heitt freyðibað með kertaljós og fljótandi rósablöð og kampavín á fernu og hlusta á Belle and Sebastian :) Ekki það að ég hafi nokkurn tímann prófað það en ég get allavegana ímyndað mér að það sé yndislegt. Hver veit nema að maður láti verða af þessari samsetningu um helgina þegar Allý fer í sumarbústað........

En nóg af mínum sjúklegu hugsunum um baðferðir og kampavín á fernu. Það er aðeins einn dagur í Heimsmeistarkeppnina í Knattspyrnu 2006 og það er ekki laust við að maður sé farinn að spennast allur upp og tala um knattspyrnu í óþarflega miklu mæli. Hef aldrei verið neitt sérlega mikill áhugamaður um knattspyrnu en maður á að sjálfsögðu sín lið í hinum og þessum deildum um allan heim og náttúrulega HM. Ég er samt að ná að toppa knattspyrnubrjálæði lífs míns þetta árið, eins og einhverjir glöggir lesendur bloggsins míns hafa eflaust lesið, er ég búinn að smíða gluggahlera fyrir alla glugga í stofunni, til að það verði örugglega engir sólargeislar sem skemma fyrir okkur knattspyrnubrjálæðið í Austurtúninu. Veit ekki alveg hvernig þetta á eftir að fara með hana Allý mína : Vona bara að hún komist klakklaust í gegnum þennann mánuð af fljúgandi tuðrum á veggnum í stofunni okkar :)

Yfir og Út
VilliKötturinn í HM stuði !!!!!

þriðjudagur, júní 06, 2006


Hún átti afmæli í gær, hún átti afmæli í gær !!

Jamm hún Allý mín átti afmæli í gær, er orðin 23 ára gömul og hefur aldrei litið betur út. Við tókum því bara rólega á afmælinu hennar. Ég vaknaði kl. 11.00 og fór í bakarí og blómabúð, eftir (morgun)verðinn ákvað Allý að bjóða foreldrum sínum í kaffi svo við fórum að taka til. Í gærkvöldi fórum við svo út að borða og skelltum okkur í bíó.

Helgin var að mestu leyti hin rólegasta, á laugardeginum sló ég garðinn hjá mömmu og pabba, var þrjá klukkutíma að slá blettinn. Enginn smá blettur !! Eftir smá sundferð var farið í garðvinnu hjá Jóni Erni. Við Jón vorum í bjartsýniskasti þar sem við ætluðum að fylla 50 fermetra garð af mold með að handmoka hana í kerru. Eftir að hafa farið 2 ferðir ákváðum við að hvíla okkur og reyna aftur á sunnudeginum. Um kvöldið var póker hjá okkur drengjunum þar sem ég lenti að öðru sinni í einvígi við Bödda sem hann sigraði. Tók okkur nettann klukkutíma að skera úr um hvor yrði sigurvegarinn. Á sunnudaginn var aftur haldið í garðinn hjá Jóni og Helgu þar sem bjartsýnin hélt áfram og við Jón tókum nokkrar kerrur í viðbót ásamt honum Vigni sem er mágur Helgu. Eftir að hafa farið nokkrar ferðir án þess að sjá neinn mun á lóðinni ákváðum við að gefast upp og Jón ætlar bara að reyna að panta einn vörubíl af mold í lóðina fljótlega, við áttum ekki eftir að fara nema uþb. 90 ferðir þegar við hættum :)
Við vorum samt ekkert hættir því við tók að moka fjórar holur fyrir girðingastaura og þurftum við að sækja okkur möl til að fylla uppí meðfram staurunum. Að loknum góðum vinnudegi grilluðum við saman hjá Jóni og Helgu, frábær dagur að kveldi kominn.

Vona að einhver hafi haft gaman af eða að þessari frásögn minni á atburðum helgarinnar.

Yfir og Út
VilliKötturinn

Ps. Það eru bara 3 dagar í HM !!!!!

mánudagur, maí 29, 2006

Ný bæjarstjórn

Eftir atburði helgarinnar verður það ný bæjarstjórn sem tekur við stjórnvölinum á Álftanesi. Eins og allir sem hafa fylgst með kosningunum ættu að vita, þá munaði einungis 3 atkvæðum að Sjálfstæðisflokkurinn héldi sínum meirihluta. Ég held að ég sé bara nokkuð ánægður með þau úrslit þó svo að minn flokkur hafi tapað og allt bendi til þess að ég fái ekki golfvöll á hlaðið hjá mér. Ég kynnti mér aðeins skipulagstillögur beggja flokka fyrir miðbæjarsvæðið á Álftanesi áður en ég fór inn í kjörklefann og mér leyst satt best að segja miklu betur á tillögur Á-Listans ég átti samt sem áður í miklum erfiðleikum með að ákveða mig þegar í kjörklefann var komið. Ég vona bara að Á-listinn eigi eftir að standa sig á þessu kjörtímabili og að ég fái einhverntímann hinn langþráða golfvöll á Álftanesinu.

Yfir og Út sprellar,
VilliKötturinn

föstudagur, maí 26, 2006



Opinberlega 28 ára gamall !!

Jamm í gær opinberaðist það að ég er 28 ára gamall, þ.e. ég átti afmæli. Ánægjulegt að Guð skildi hafa gefið mér gott veður til að njóta afmælisdagsins betur. Ég tók því bara ósköp rólega á afmælisdaginn, fór í bæjarferð og fékk mér ís á Ingólfstorgi með Allý eiginkonu minni. Og hélt síðan uppá afmælið mitt með ístertu og kaffi heima hjá Jóni og Helgu í gærkvöldi ;) Þetta er í fyrsta skipti sem ég hef boðið sjálfum mér í afmælið mitt heima hjá einhverjum öðrum. Aldrei að vita nema maður gerið þetta bara að árlegum viðburði. Um helgina eru svo kosningar, ekki er ég alveg búinn að gera upp hug minn varðandi þessar kosningar ég er alls ekki sáttur við núverandi bæjarstjóra, en ég veit samt ekki hvort mér líst eitthvað betur á mótframboðið þar sem þeir virðast ætla að hætta við golfvöllinn sem X-D eru að byrja að byggja, en hann er einmitt beint fyrir utan dyrnar á heimili mínu. Eina sem ég veit er að það eru allar líkur á að Álftaneslistinn fari með sigur úr býtum í þessum kosningum samkvæmt þessari skoðanakönnun. Ætli maður geri ekki bara eins og Jón Örn og geri upp hug sinn inní kjörklefanum og láti síðan ekki nokkurn mann vita hvað maður kýs.

Yfir og út og áfram X-D ;)
VilliKötturinn

miðvikudagur, maí 24, 2006

Já ég veit að ég er klikkaður ;)

Í tilefni af góðu gengi okkar Íslendinga í Eurovision hef ég ákveðið að deila einni mynd úr árshátíðaratriðinu mikla þar sem ég var settur í gervi þjóðþekktrar persónu og látinn syngja og dansa í tónlistarmyndbandi. Og nei þetta er ekki mynd af systur minni :)

Eins og flestir sem þekkja mig vita þá finnst mér alveg óendanlega gaman að gera mig að fífli og má segja að þetta atriði hafi toppað fíflaskapinn í mér. Njótið myndarinnar vel og ekki vera hrædd við að commenta á kallinn ;)

mánudagur, maí 22, 2006


Vetur, sumar, vor eða haust ??

Já það er aldeilis undarleg veðráttan þessa dagana svo maður bloggi nú aðeins um jafn skemmtilegann hlut og veðrið eða eyrnarpinna eða eitthvað álíka ;) Annars er bara allt gott að frétta af okkur hjónakornunum þessa dagana. Við erum komin með dvergaeldavél og gasgrill þannig að það fer að styttast í að maður geti boðið vinum og vandamönnum í matarboð á Álftanesinu. Eina sem vantar núna er hurð á klósettið :D Þekkt vandamál í íbúðum sem við Allý höfum búið í, ýmist situr fólk inní stofu á klósettinu eða eldhúsi það er allavegana aðalatriðið að hafa enga hurð. Ég er búinn að rífa golfsettið fram að nýju og eru massívar æfingar hafnar. Búinn að fara 3svar í bása í síðustu viku sem er 3svar sinnum oftar en í allan vetur.

Maður er farinn að hlakka mikið til HM og er ég búinn að smíða gluggahlera fyrir alla glugga í stofunni, svo það komist örugglega ekki einn einasti sólargeisli inn til að skemma myndina frá skjávarpanum. Svo verður starfrækt HM krá á heimili mínu á meðan á öllum ósköpunum stendur, Jón Örn og Óli munu ábyggilega nánast búa hjá mér (Óli er búinn að kaupa sæti í stúkunni) og hver veit nema heiðursmenn eins og Þorri og Gismo láti eitthvað sjá sig líka. Eitt er allavegana víst að fótboltinn verður í hávegum hafður og ekki víst að greyið Allý eigi eftir að fíla þetta mikið :)

Yfir og út,
VilliKötturinn (í Brasilíu sokkum og nærbuxum)

fimmtudagur, maí 11, 2006



Alltí lagi þá, ég skal blogga :)

Jamm ég hef ekki bloggað í þónokkurn tíma, enda hefur verið viðbjóðslega mikið að gera hjá mér síðan ég kom heim frá Barcelona. Árshátíðarferðin var semsagt bara snilld, við Allý höfum sjálfsagt aldrei gengið jafnmikið á ævinni, enda mikið sem hægt er að skoða í þessari stórkostlegu borg. Fyrsta daginn fórum við í lengstu skoðunarleiðangur sem ég hef farið í. Vöknuðum eldsnemma og fórum beint í Casa Batllo sem er eitt af flottari húsum borgarinnar, að sjálfsögðu hannað af hinum eina sanna Gaudi. Á fyrstu myndinni með þessum pósti má sjá okkur Allý í Casa Batllo. Eftir rúmann klukkutíma í þessu rosalega húsi var haldið í fjölskyldukirkjuna eða Sagrada Familia sem er án efa ein fallegasta kirkjubygging í heimi og hún er ennþá í byggingu, búin að vera það síðan 1882 og á eftir að vera það í 20 ár í viðbót. Alveg hreint magnað fyrirbæri, má einmitt sjá hana á myndinni með síðasta pósti og líka á annarri myndinni með þessum pósti.

Til að fullkomna Gaudi ferðina okkar skelltum við okkur í Parc Guell sem er garður sem Gaudi hannaði, alveg hreint stórkostlegt fyrirbæri.

Annann daginn var farið í bæjarferð að leita sér að einhverju til að versla, það var nú ekki mikið sem við fundum en Allý náði þó að versla sér tvenn skópör :) Um kvöldið var svo árshátiðin og var skemmtiatriðið sem ég lék aðalhlutverkið í sýnt við rosalegar undirtektir, kannski segi ég ykkur einhvern tímann um hvað það snerist ;) Við skulum segja að það var tónlistarmyndband og ég lék ákveðna kvenkyns persónu sem er afskaplega mikið í fjölmiðlum þessa dagana :D

Á sunnudeginum tókum við því bara nokkuð rólega fyrir utan að fara náttúrulega í gönguferð í verslunarmiðstöð og eitthvað svoleiðis. Á mánudeginum fórum við síðan í klaustur uppá merkilegu fjalli sem heitir Montserrat, þar er einmitt að finna einn heilagasta stað Spánar sem á sér magnaða sögu. Þvílíkt fallegur staður með ótrúlegu útsýni.

Segi meira síðar.

Bestukveðjurbiðaðheilsaheim
GatoSalvaje

mánudagur, apríl 24, 2006


Barcelona Beibí !!

Jæja jæja gott fólk nú er þetta allt saman að skella á. Við hjónin erum að fara ásamt vinnufélögum mínum til Barcelona á fimmtudaginn næsta. Verður bara snilldarferð, ætlum að nýta tímann vel og skoða öll helstu kennileyti borgarinnar, Sagrada Familia, Parc Guell og ábyggilega einhver söfn og fleira. Við ætluðum að skella okkur á leik með Barcelona á sunnudeginum en honum hefur verið flýtt á laugardagskvöldið sem er sama kvöld og árshátíð Hugar verður þannig að það verður því miður ekkert af því. Ætli maður endi þá ekki í einhverri verslunarmiðstöðinni að "skoða" eitthvað sniðugt. Annars var ég í upptökum á skemmtiatriði Viðskiptalausnasviðs, sem er deildin sem ág vinn í, á laugardaginn og þetta er allsvakalegt atriði. Verður án efa glæsilegasta atriði kvöldsins. Þar sem það hvílir mikil leynd yfir því ætla ég ekkert að segja meira í bili. Við skulum bara segja að atriðið sem ég tók í söngvakeppni framhaldsskóla um árið bliknar í samanburði við Þetta ;)

Annars er hér smá brandari til að útskýra fjarverju mína úr bloggheiminum.

Ég nenni ekki að vera svona bloggari þannig að ég ætla bara aðblogga þegar ég hef eitthvað til að segja frá.

Yfirogútkjellarogkjellingar
VilliKöttur

föstudagur, apríl 07, 2006


Jamm og jú, jamm og jamm og jú

Ég varð að láta þessa snilldarmynd sem hann Pétur vinur minn teiknaði fylgja þessum pósti. Maðurinn er náttúrulega bara snillingur !!! Það er hægt að skoða meira af listaverkum eftir hann á síðunni hans http://www.paacart.com

Í kvöld er úrslitakvöldið í Idol stjörnuleit og ég ætla ekki að horfa. Ástæðan er kynning á árshátíðarferð Hugar sem verður farin til Barcelona þann 27. apríl, gríðarlega er ég spenntur fyrir þessari ferð. Ætli maður reyni ekki bara að taka þetta drasl upp, annars er mér nokk sama hver vinnu þetta þar sem Alexander datt út fyrir löngu.

Allý er búin að vera á Akureyri síðan á miðvikudaginn, ég hef reyndar ekki verið heima hjá mér alla vikuna. Á miðvikudagskvöldið vorum við félagarnir að ganga frá nýju hátölurum og nýjum skjávarpa uppí kirkju og var ég ekki kominn heim fyrr en kl. 02.00 um nóttina. Í gær var ég síðan í upptökum með Jóni Sig til kl. rúmlega 23.00. Við drengirnir náðum að taka upp grunna að tveimur lögum þannig þetta fer allt að koma. Bráðum má ábyggilega heyra eitthvað af þessu efni á veraldarvefnum. Annað kvöld verður síðan boðið uppá pókerkvöld aldarinnar, við strákarnir ætlum að hittast uppúr 19.30 og snæða pizzzulynga og horfa á ofurpókermyndina Rounders. Síðan ætlum við að spila póker fram á rauða nótt, verður ekkert annað en snilldarkvöld. Á sunnudaginn fæ ég svo hana Allý mína heim aftur sem verður mjög gott, erfitt að hafa hana ekki heima þó ég sé ekki búinn að vera mikið heima sjálfur.

Yfirogútoggóðahelgielskurnarmínar
VilliKjattlarinn

mánudagur, apríl 03, 2006


The beautiful people

Já ég hef verið að fá góð viðbrögð við myndina af hinum íðilfagra David Hasselhoff sem ég lét fylgja síðasta pósti. Af þeirri ástæðu hef ég ákveðið að halda áfram að senda inn myndir af fallegu fólki með póstunum mínum ;)

Helgin var sú rólegasta, við Allý skelltum okkur á útsölumarkað á föstudaginn þar sem við fundum eitt stk. frakka og eina úlpu á mig á 3000 kall stykkið. Laugardagurinn fór vel af stað ég ræsti Allý um hádegið og við fórum í "slökunarferð" í Kringluna, þar sem ég er dáldið brenndur eftir hurðunina í síðustu viku þá hófst ferðin á því að taka mynd af númeraplötum bílanna sem voru lagðir sitthvoru megin við bílinn okkar :) Smökkuðum í fyrsta skipti (believe it or not) svona Crépes pönnukökur fylltar með allskonar gúmmilaði, kom bara nokkuð vel út.

Annars er "mixer" aðstaðan í kirkjunni að verða klár, Gústi hefur lokið við smíðina að mestu leyti og verða nýju hátalarnir ásamt nýjum skjávarpa hengdir í loftið á miðvikudagskvöldið.

Ekkimeiraíbili
VilliKötturinn

föstudagur, mars 31, 2006


AHA......

Föstudagur er alltaf föstudagur, skiptir ekki máli hvort að það sé búið að bóna bílinn eða ekki. Hvað er það með fólk sem rekur hurðina á bílnum sínum í bílinn manns og lætur mann ekki vita ? Einhver yndislegur aðili hefur rekið hurðina svo hressilega í fína Skodann okkar Allýar að það stórsér á honum :( Ég er ekkert alveg sáttur við þetta því ég veit það fyrir víst að tryggingarfélögin eru hætt að lækka bónusa hjá fólki sem lendir í einhverjum svona smáóhöppum, þannig að sá aðili sem lendir í þessu tapar engu á að láta vita. Þar sem bíllinn okkar er sanseraður þarf að heilsprauta þann hluta sem er rispaður og mun svona viðgerð ef maður vill að vel sé gert, ábyggilega kosta í kringum 100þús. Þar sem ég á ekki 100þús á reiðum höndum, mun ég líklega bletta í þetta sjálfur og er það ekki falleg viðgerð, en það verður bara að loka fyrir rispuna svo þetta fari ekki að ryðga.

Síðan ég bloggaði síðast hefur mikið gengið á í lífinu, við drengirnir í tobiaz spiluðum á árshátíð einstakra barna á laugardagskvöldið og skelltum okkur svo beint uppá Skaga þar sem við skemmtum á meðan keppendur í Ungfrú Vesturland brugðu sér úr baðfötum í kvöldkjóla :D Dáldið spes andrúmsloft á svona fegurðarsamkeppni, frekar skrítið að sjá gelluna í bíkiníinu koma hlaupandi "Ég verð bara að fá mér sígó" svo stendur hún á baðfötunum og tottar Winston í dyragættinni. Ekki beint falleg sjón, en það er víst með þetta eins það að hafa hægðir, sætar stelpur gera þetta víst allt líka ;) Í kvöld áttum við svo að vera að spila á árshátíð en það klikkaði eitthvað vegna þess að henni var frestað. Við náðum að klára fyrsta grunninn að lagi fyrir Demoið okkar og stefnum við að því að hittast á sunnudaginn og reyna að klára 1-2 grunna í viðbót. Semsagt nóg að gera hjá tobiaz þessa dagana.

föstudagur, mars 24, 2006


Lisa Ekdahl

Við hjónin ætlum að skella okkur ásamt mömmu á tónleika með Lisu Ekdahl í kvöld. Þessi sænska ofursöngkona hefur átt hug okkar og hjarta síðan Böddi og Ingunn gáfu okkur disk með henni í afmælisgjöf fyrir nokkrum árum. Ég á allar jazzplöturnar með henni og náði mér núna síðast í nýja diskinn sem inniheldur lögin sem hún er að fara að flytja í kvöld. Ég er soldið svekktur yfir því að hún er alveg hætt í djassinum og komin alfarið í einhverskonar sænskt þjóðlagapopp sem ég er einhvernveginn ekki alveg að fíla. Maður verður samt að skella sér og sjá hana performera svona einu sinni. Við keyptum okkur miða með sætum á besta stað þannig að við ættum að geta notið tónlistarinnar.

Í gærkvöldi var ég að syngja með Jóni Sig á styrktartónleikum fyrir BUGL í Hólabrekkuskóla. Við vissum ekkert hvað við vorum að fara útí en þegar á staðinn var komið blasti við okkur fullur salur af grunnskólanemum. Það fyrsta sem fór í gegnum hugann á mér var að lögin sem við vorum búnir að æfa og plana að taka myndu engann veginn ná að fanga athygli svona ungra krakka, þannig að við ákváðum að slaufa bara einu laginu af prógramminu sem við vorum með og tókum "Have You Ever Seen The Rain" og "Swing Low". Að þeim lögum loknum hófst eitt allsherjarflipp þar sem við tókum lög eins og "Súrmjólk í hádeginu" og "Sókrates" ásamt einum BeeGees smell sem við sungum á falsettunum ;) Þetta var frábærlega gaman, það gefur manni eitthvað svo mikið að getað glatt svona krakka.

Ekki meira í bili
VilliKötturinn

föstudagur, mars 17, 2006



Jól í mars ????

Jamm það merkilega gerðist á föstudaginn að ég var pantaður sem jólasveinn, nánar tiltekið klukkan 16.00. Tilefnið var að sjálfsögðu gæsun þar sem ég gerði saklausri verðandi brúður þann grikk að mæta á svæðið í jólasveinabúningnum og söng ég fyrir hana ástarlag :D Þetta var bara snilld. Ég var náttúrulega Giljagaur og þóttist vera yfir mig ástfanginn af henni, gekk um fyrirtækið þar sem hún vinnur með sólblóm og hring í hönd og kallaði nafnið hennar í sífellu. Þegar ég kom að vinnustöðinni hennar var hún í símanum og ég fór að segja henni að ég væri kominn til að stöðva það hrikalega atvik sem væri að fara að eiga sér stað, þ.e. að hún væri að fara að giftast einhverjum öðrum. Til að kóróna ástarjátninguna söng ég fyrir hana væmnasta jólalag heimsins sem er "Ég og þú" sem Eiríkur Hauksson og Halla Margrét (held ég) gerðu ógleymanlegt á sínum tíma. Að laginu loknu afhenti ég henni hringinn og bað hana um að giftast mér (Giljagauri), hún var frekar vandræðaleg, enda allir vinnufélagarnir mættir að fylgjast með hvað væri eiginlega í gangi. Þetta er í fyrsta skipti sem ég leik jólasvein og engin börn eru nálægt þannig að þetta var allt öðruvísi tilfinning, ég í rauðum galla með hálfa rollu í smettinu að leika jólasvein fyrir fullt af konum sem vita allar að ég er bara einhver hálfviti í búning !!!

Annars var helgin bara nokkuð góð, ég og pabbi kláruðum að reisa grindina fyrir millivegginn sem skiptir upp baðherberginu og eldhúsinu og er þá næsta verkefnið líklega að klæða vegginn og fá rafvirkja til að græja rafmagnið fyrir eldavélina. Semsagt allt að verða klárt. Væri gaman að geta haldið Eurvision samkvæmi í kláraðri íbúð, kemur í ljós hvort maður nái því. Á laugardagskvöldið fórum við Emil heim til Söru systur þar sem við systkinin ásamt Pétri frænda spiluðum Texas Holdem poker fram á rauða nótt, gríðarlega fjörugt kvöld á ferðinn þarna. Rúsínan í pylsuendanum var svo frábær samkoma í gærkvöldi þar sem undur og stórmerki áttu sér stað í mínu lífi.

Yfir og út,
VilliKjettann

sunnudagur, mars 12, 2006


Vávávávává !!!

Ég var á geðveikustu tónleikum sem ég hef farið á í langann tíma í kvöld. Við Emil bróðir skelltum okkur á The Bad Plus sem er framúrstefnulegt Jazz tríó frá Bandaríkjunum, þar hittum við Þorra, Grétar og Jón Bónda sem að sjálfsögðu láta sig ekki vanta á þvílíka stórviðburði. Það er alveg óhætt að fullyrða það að við urðum vitni að einum magnaðasta hljóðfæraleik sem sést hefur hér á landi. Þeir spiluðu mestmegnis lög af tiltölulega nýútkominni plötu sinni sem heitir "Suspicious Activity" mæli algjörlega með henni fyrir alla þá sem kunna að meta góðann Jazz. Mér fannst þeir góðir áður en ég fór á þessa tónleika en eftir að hafa séð þá með eigin augum sér maður hvað þessir menn eru rosalega færir, trommarinn fór gjörsamlega hamförum ég hef aldrei séð eins hratt trommusóló eins og maðurinn tók í einu aukalaginu í lokin. Bassaleikarinn og píanóleikarinn eru líka algjöri snillingar, hraðinn á þessum mönnum er ótrúlegur og tónsmíðarnar ekki síðri. Það var líka einstaklega gaman að heyra þá taka "Human Behavior" eftir Björk okkar og svo "Flim" eftir Aphex Twin, Nirvana smellinn "Smells Like Teen Spirit" og Lagið úr Chariots of fire. Það er einhvernveginn ekki hægt að lýsa þessari upplifun þú verður eiginlega að hafa verið þarna til að skilja hversu rosalegir þessir tónleikar voru. Vona að þessir menn komi aftur til landsins eins og þeir sögðu, þá er bara um að gera fyrir þig lesandi góður að ná þér í miða á þessa rosalegu menn !!

Yfir og út,
VilliKötturinn

mánudagur, mars 06, 2006


Helgin að baki......

Þá er helgin afstaðin og ný vinnuvika hafin. Ég skellti mér í póker á laugardagskvöldið og þar vorum við 12 mættir sem er nýtt met og hefðum við ekki getað troðið hálfum manni í viðbót við borðið. Emil bróðir minn, sem hefur verið goðsögn í þessum hópi fyrir stóra sigra í netpóker, mætti á svæðið og spilaði góðann leik. Spennan var alveg hreint ótrúleg þetta kvöld og voru miklar sviptingar í gangi. Á endanum stóðu samt tveir sveittir menn eftir og var ég annar þeirra. Hinn aðilinn var Hlynur frændi hans Sæma og skiptumst við á því að leiða pottinn í ábyggilega hálftíma en einhver hlýtur að sigra á endanum og var það Hlynur sem tók þetta. Ég verð að segja að tapsári Oddur kom soldið upp í mér enda var mjótt á mununum. Á meðan við drengirnir vorum að klára stóra leikinn byrjuðu nokkrir af okkur á nýjum leik og sló ég til og hélt áfram að spila með þeim. Lukkan hélt áfram að vera með mér og á endanum stóð ég uppi sem sigurvegari ! Get ekki sagt annað en að manni hafi liðið vel eftir það ;)

Á sunnudeginum var dagurinn tekinn "snemma" eða nánar tiltekið kl. 10.00 þar sem ég var að fara í sunnudagaskólann á Álftanesi að kenna litlu börnunum um Jesú. Í eftirmiðdaginn hittumst við strákarnir í tobiaz og tókum upp grunninn að okkar fyrsta demo'i. Lagið sem við erum að taka upp er frumsamið lag eftir Jón Sig sem heitir "Það sem áður var" verður virkilega spennandi að heyra hvernig það kemur til með að hljóma á endanum.

peasát
VilliKötturinn (Mjáááá)

laugardagur, mars 04, 2006


Laugardagur til leti ;)

Í dag er svo sannarlega búinn að vera letidagur, ég tók reyndar til og ryksugaði en það er nú svosem ekki mikið. Annars er ég bara búinn að vera að spila Póker og horfa á Family Guy í tölvunni. Yndislegt veður búið að vera í dag, ég leyfði Móglí að fara útá svalir áðan og hann fílaði það bara nokkuð vel. Sara systir mín var að kvart yfir því að ég talaði aldrei um hana á þessu bloggi. Mig langar bara að segja að hún er yndislega falleg og skemmtileg systir sem er gott að eiga að.

Mamma er að fara að grilla "sveinköd" í kvöld þannig að ég ætla að henda mér í sturtu og hreinsa af mér laugardagsskítinn :)

Yfir og Út
VilliKötturinn bróðir Söru

fimmtudagur, mars 02, 2006


Hvar er boltinn ?

Þessi vika er búin að vera rosalega bizzý hjá kallinum, ég er ekki búinn að vera heima hjá mér nema bara á nóttunni alla vikuna og í kvöld verður sama sagan. Við drengirnir í tobiaz erum að fara að hittast heima hjá honum Jóni Sig til að hefja upptökur á litlu demoi sem verður reynt að gera síðan eitthvað við í framhaldinu. Ætli fyrstu skrefin verði ekki að fara með það í Skífuna og reyna að fá þá til að gefa eitthvað efni út.

Í gærkvöldi vorum við Gústi Steindórs og Ragnar uppí kirkju að vinna í hljóðkerfismálunum, það er allt að færast í betra horf í þeim málum þessa dagana. Við Ragnar vorum að koma bassaboxunum fyrir í sviðinu á meðan Gústi var að klæða nýju tækjaaðstöðuna sem verður sett upp aftast í salnum. Á næstu dögum verður svo fjárfest í nýjum hátölurum sem verða festir í loftið í salnum og á þetta allt saman eftir að bæta hljóminn á samkomum svo um munar.

Ætli maður verði ekki bara heima hjá sér annað kvöld og horfi á Idol stjörnuleit og slaki á. Pffffffffffff....................................

°Geisp°
VilliKötturinn

mánudagur, febrúar 27, 2006


Varúð ! Það er svo hált, og vesenið útum allt !!

Vaknaði í morgun og það var glampandi sólskin yfir borginni okkar fallegu. Skellti mér í sturtu og hélt svo af stað í vinnuna. Þegar ég kom út sá að bíllinn var þakinn í frosti, ekkert óvenjulegt á þessum árstíma....ég hófst handa við að skafa og það gekk vel með hliðarrúðurnar en vááááá ég hélt ég yrði marga daga að skafa framrúðuna á bílnum mínum, skafan var ekkert að bíta á frostinu. Eftir 1o mínútna hamagang og svita gat ég loksins lagt af stað í vinnuna.

Ég ætla að vona að þið hafið ekki misst af American Idol í gærkvöldi, Paris litla er stórkostleg söngkona !!! Bara 17 ára og stendur öllum öðrum söngkonum framar þetta árið. Í kvöld eru svo strákarnir að syngja, hlakka ótrúlega mikið til að sjá hvernig þeir munu standa sig.

Ég kláraði flísalögnina endanlega um helgina, þ.e. lakkaði flísarnar þannig að nú er bara að taka vaskana á baðinu niður af veggnum og saga borðplötuna í tvennt, útbúa síðan eldhúsvaskinn og festa uppá vegginn. Svo er spurning hvort maður fari ekki að gera eitthverjar ráðstafanir með vegginn, þyrfti eiginlega að fá einhvern OFURSMIÐ til að kíkja í kaffi og koníak og gefa mér ráðleggingar með hvernig sé best að útfæra hann ;)


Yfir og Út
VilliKötturinn

laugardagur, febrúar 25, 2006

Edikið virðist ekki vera að virka neitt sérlega vel þannig að ég er búinn að úða lyktareyðandi drasli í sófann. Ég vona svo innilega að lyktin náist úr, ekki vil ég bjóða nokkrum manni að liggja í svefnsófa sem lyktar eins og kattahland :(

Yfir og Út
VilliKötturinn

Iss Piss og Pelamál....

Ég er nú ekki vanur að vera kominn á fætur klukkan 10 á laugardagsmorgnum, en að þessu sinni vaknaði ég fór á klósettið og kíkti aðeins inn til kattanna. Það var heldur betur dásamleg sjón sem mætti mér þar. Kettirnir voru búnir að gera þarfir sínar í svefnsófann okkar sem Allý og mamma keyptu rétt fyrir jólin. Yndislegt !!!! Ég þurfti náttúrulega að fara að leita einhverra ráða til að hreinsa þennann viðbjóð í burtu. Skellti leitarorði í Google og fann það út að líklegast væri best að blanda ediki í vatn og sprauta á þennann ófögnuð. Ég er semsagt bara að bíða núna á meðan edikið vinnur á pissinu. Eins og ég sagði þá veit ég ekkert hvort þetta virkar, læt ykkur vita seinna í dag hvernig þetta gekk.

Ógeðslega munaði litlu að Alexander dytti útúr Idolinu í gær, mér fannst hann alveg eins eiga það skilið. Hann stóð sig ekki vel í gær, íslenskan var illa borin fram og söngurinn var flatur. Fer honum miklu betur að syngja á ensku, eða hann þarf allavegana að æfa sig betur ef hann ætlar að ná íslenskunni. Ég er viss um að hann á eftir að standa sig betur í Brit Pop þemanu sem verður næst, Bítlalög og skemmtilegheit.

Jamm og jæja, ætla að fara að þrífa kattapiss :(
VilliKötturinn

fimmtudagur, febrúar 23, 2006

Hvað er að gerast ??

Ég veit ekki alveg hvað gerðist í síðustu færslu en stundum bara gerist eitthvað og ég get ekki hætt að skrifa. En að minnsta kosti þá er allt í góðu þessa dagana, fórum í kaffi til Óla og Hrefnu í gær. Rosa gaman að koma í heimsókn til þeirra hjóna, Óli er alltaf eitthvað að dunda sér við að taka upp með MBoxinu sínu ég verð að fara að kaupa mér þennann blessaða mæk sem ég er búinn að vera að bíða eftir að eiga pening fyrir svo maður geti nú farið að taka eitthvað af viti upp. Tríóið tobiaz stefnir á að taka demo upp á næstu dögum, aldrei að vita nema maður fari að reyna að koma einhverju efni í spilun í útvarpi. Kiddý systir er að taka upp vögguvísudisk þessa dagana og er hægt að hlusta á smá brot af honum á síðunni hennar http://kiddythor.tk Lofar bara mjög góðu og verður gaman að heyra hvernig restin mun hljóma.

En nú er kominn tími til að borða hest,
VilliKötturinn


Allt eins og blómstrið eina....

Hvernig var með blómið, fékk það einhvern tímann sopann af mjólkinni sem Gunnar átti eftir að kaupa bílinn fyrir áramót en það var ekki allt með felldu því sólargeislinn hafði brennt gat á skónna hans Pálma sem í þann mund sem Guðmundur renndi í hlað heyrðist þetta líka gríðarlega öskur, veit ekki alveg hvað var á seyði en einhverra hluta vegna virtist eins og það sem áður var með felldu væri ekki alveg með felldu og þarafleiðandi var engan veginn hægt að greina hvort mjólkin væri raunverulega búin eða hvort um eitt risastórt allsherjar samsæri væri að ræða. Engu að síður er sólin sest og sykurpúðinn hennar mömmu sinnar er eins og oftast áður búinn að borða allt sem hægt er að borða án þess þó að hann sé á nokkurn hátt orðinn saddur, þó ekki nema síður sé eins og afi hefði sagt á góðum degi fékk ég mér ís með dýfu og snickers kurli, samt ekkert eins og mig langaði að dansa við Guðlaug en lífið er bara ekkert alltaf eins og maður bjóst við þegar hurðin opnaðist stóð þar fegurðardís sem aldrei hafði séð hundasúrur fyrr en dagur var að kveldi kominn.

Ég veit ekki alveg hvað ég er að reyna að segja með þessu en vona bara að einhver þarna úti skilji mig.

VilliKötturinn

þriðjudagur, febrúar 21, 2006


Lítill fugl.....

Afþví að ég er svo grannur og á svo mikinn pening skellti ég mér á McDonalds um daginn. Þegar við Allý vorum að snæðingi í bílnum komu nokkrir þrestir og gerðu sig líklega um að koma inn í bílinn til að gæða sér á frönskum kartöflum. Hér er skemmtileg mynd sem ég náði af einum þeirra með IPAQ klósettkafaranum mínum ;)

Magnaður Kompáss þáttur á Stöð 2 á sunnudaginn. Ótrúlegt hversu margir fullorðnir karlmenn eru til í að perrast í og jafnvel sofa hjá 13 ára stelpum. Skora á alla að horfa á þennann þátt á VefTíví Vísis. Mér finnst þetta frekar óhugnalegur þáttur sem fær mann til að hugsa um netnotkun barna sem maður þekkir. Mér finnst að lögreglan ætti að hafa heimildir til að gera álíka kannanir til að fæla svona menn frá þessum athöfnum. Maður veit aldrei hvaða menn eru líklegir til að fara útí svona viðbjóð !!!

Yfir og Út
VilliKötturinn

mánudagur, febrúar 20, 2006


Monday, monday....

Í dag er mánudagur og ég verð að segja að maður er bara nokkuð þreyttur í dag, en ég hef ekki ennþá fengið mér kaffi þannig að ég á eftir að hressast ;)

Við fórum í ammælisveislu til Grétars á föstudagskvöldið að loknu Idolinu, btw. rosalega var Alexander flottur í Idolinu !! Splittið í endann var hrein snilld !!! En aftur að afmælinu, í boði voru dýrindis veitingar sem Erla hafði útbúið af sinni einskæru snilld, að sjálfsögðu fengum við að heyra "Bíllinn og Bensíndælan" sem er alltaf lesin á hverju árið í veislunni hans Grétars.

Á laugardaginn fórum við að hjálpa Óla og Lísu að flytja, fínasta íbúð sem þau eru komin í. Vona að þeim eigi eftir að líða vel á nýja heimilinu sínu. Svo var náttúrulega Eurovision, rosalega voru mörg góð lög í keppninni þetta ár. Mér fannst lagið hennar Regínu lang lang best og hálfgerð synd að hún sé ekki að fara út. Samt er ég alveg viss um að Sylvía Nótt á eftir að vekja lukku, allavegana ef Evrópubúar fatta djókið :) Ég er soldið stressaður að litlar stelpur sem eru farnar að líta upp til hennar haldi að hún sé alvöru og að svona eigi maður bara að hegða sér, alls ekki góð fyrirmynd hér á ferðinni. Þá er Birgitta Haukdal skömminni skárri :

Yfir og Út skiluru !!
VilliKötturinn

Ammælisveisla !!

Jammann, í kvöld er ammæli hjá Gismo og munum við að sjálfsögðu skunda þangað að loknu Idolinu. Kallinn er orðinn 28 ára gamall, ekki langt í að hann verði orðinn stór. Ég er sjálfur að fara að ná þessum aldri í maí, styttist í að maður fari telja grá hár ;) Og hvað ætlar maður svo að verða þegar maður verður stór, ég veit ekki ? Ætli maður verði ekki bara viðskiptastjóri hjá Hug :D Þetta er pæling ekki það manni langar alltaf að verða söngvari, veit ekki hvort sá draumur á nokkurn tímann eftir að rætast að fullu en maður má víst aldrei segja aldrei. Fullt af góðum hlutum að gerast í tónlistarmálum hjá manni þessa dagana, maður verður bara að vera duglegri við að koma sér á framfæri.

Eins og ég sagði áðan þá er Idolið í kvöld og að þessu sinni er Disco þema, sami litli fugl og síðast hvíslaði að mér að Alexander ætlaði að syngja "Play that funky music white boy", vona bara að kallinn standi sig betur en síðast. Þau voru öll eitthvað skrítin í síðasta þætti, eitthvað eins og þau væru eitthvað illa upplögð eða eitthvað.

Mamma kemur heim í dag og ætlaði hún að kaupa handa mér kaffibaunir á Starbucks, Espresso blendið þar finnst mér vera það besta sem ég hef smakkað. Ótrúlega "smooth" enda flokkast það líka undir smooth kaffi hjá Starbucks.

Ætla að reyna að klára að þrífa flísarnar í kvöld svo það verði hægt að bera einhvern tímann á þær. Þær þurfa að fá að þorna í 3 sólarhringa áður en maður ber á þær. Þannig að flísalagningunni veður endanlega lokið í byrjun næstu viku, HALLELÚJA !!!

Hafið það gott um helgina elskurnar mínar,
VilliKötturinn

miðvikudagur, febrúar 15, 2006


Brátt er hægt að baða sig og losa sig við úrgang á ný á heimili okkar Allýar þar sem við pabbi erum að leggja lokahönd á flísalagningu baðherbergisins. Það verður sko fúgað í kvöld og er þá öllu lokið nema náttúrulega að bóna flísarnar. Nú fer að koma tími til að tengja, þ.e. fá rafvirkja til að leggja fyrir eldavélina svo við getum nú eldað líka. Það verður svo frábært þegar þetta verður allt búið og við getum farið að lifa sem eðlilegustu lífi í íbúðinni, ekki það að við höfum það svosem bara mjög gott í dag.

Ég hitti JónSig í gær og hann lét mig fá upptökur af nýjum lögum sem kemur til greina að taka í tríóinu tobiaz, efni sem lofar góðu. Við erum að velta fyrir okkur að reyna að taka upp nokkur lög með M-Boxinu mínu, kemur svo bara í ljós hvað við gerum með þau.

Ekki meira í bili,
VilliKötturinn

þriðjudagur, febrúar 14, 2006

Mamma er flogin

Jæja þá er mamma farin út og aftur orðið mömmulaust heimili, þá byrjar skítugi þvotturinn hjá Emil bróður mínum að safnast upp og líka leirtauið í herberginu hans ;)

Í kvöld er hinn vikulegi heimahópur og að þessu sinni er það keila í Mjódd þar sem það er komið að hinum mánaðarlega skemmtihóp. Verður gaman að sjá hvort strákarnir er jafn sleipir í keilu eins og í pool. Annars eru Óli og Lísa að flytja þessa dagana og Allý er á fullu í að hjálpa þeim, ætli maður verði ekki að reyna að hjálpa eitthvað til á næstu dögum svo að allt gangi sem best fyrir sig.

Jæja, ætla að halda áfram að spila póker í tölvunni,
VilliKötturinn

mánudagur, febrúar 13, 2006


Mánudagur til mæðu eða hvað ??

Hvernig leggst eiginlega þessi mánudagur í ykkur góða fólk. Hann leggst eiginlega bara mjög vel í mig. Var ásamt drengjunum í tobiaz í frábærum þætti hjá Hemma Gunn í gær, á Bylgjunni í "N á tali", kom alveg hreint glimrandi út hjá okkur þó ég segi sjálfur frá ;) Þið sem misstuð af þættinum getið hlustað hér : http://veftivi.visir.is/veftivi/main.do?treeId=21014&progId=11085 Við strákarnir komum inn á 26. mínútu. Endilega kommentið á þessa frammistöðu hjá okkur hérna á bloggið.

Annars var helgin bara mjög góð, við pabbi kláruðum að saga allar flísarnar og maður ætlar að reyna að klára að líma þær í kvöld, þetta kemur gríðarlega vel út hjá okkur. Á laugardagskvöldinu fórum við í mat til Þorra og Árdísar og fengum þar grillaðar kjúklingabringur með geðveiku salati og fullt af hvítlauk. Árdís var í hvítlauksmóki allt kvöldið og er pottþétt að allar vampírur heimsins hafa haldið sig í 100 km. fjarlægð frá okkur. Maturinn var hrein og tær snilld og skemmtum við okkur konunglega í góðra vina hópi.

Mamma fór með Söru flughræddu til London áðan. Hún er að fara að skoða skólann sem hún er að öllum líkindum að fara að dvelja í næstu þrjú árin frá og með næsta hausti, hún er að fara að læra "Art Therapy" eða Listmeðferð sem felst í því að láta fólk tjá sínar tilfinningar ofl í gegnum listir. Verður gaman að heyra ferðasöguna frá þeim þegar þær koma aftur.

Eigiði góða viku elsku vinir......
VilliKötturinn

föstudagur, febrúar 10, 2006


Það er Idol dagur í dag og ég hlakka dáldið til að sjá og heyra hvernig Alexander stendur sig. Lítill fugl hvíslaði að mér að þemað í kvöld sé fæðingarár keppenda og mun Alexander víst syngja lag eftir Toto, verður gríðarspennandi að sjá það, því ég veit að kallinn mun höndla það vel. Ætli maður verði ekki að reyna að elda eitthvað gott í kvöldmatinn til að borða með Idolinu, pizzu eða eitthvað álíka.

Á morgun verður svo haldið áfram með flísalagningu á baðeldhúsinu okkar. Það miðar mjög vel áfram, pabbi er náttúrulega snillingur þegar að einhverju svona snýr. Ég býst við að við klárum lagninguna á morgun. Síðan er Sara systir með samkvæmi í Austurtúninu annað kvöld, verður áreiðanlega stuð á þeim bæ. Veit ekki hvort ég nenni að blogga eitthvað um helgina en það verður bara að koma í ljós.

Yfir og Út,
VilliKötturinn

fimmtudagur, febrúar 09, 2006


Konukvöldið var snilld og held ég að við drengirnir í tríóinu tobiaz höfum vakið mikla lukku meðal viðstaddra. Allý og Helga smelltu nokkrum myndum og smá videoi af okkur drengjunum, aldrei að vita nema að það fái að líta dagsins ljós á veraldarvefnum. Nú þurfum við strákarnir bara að halda áfram að æfa okkur og safna að okkur slatta af lögum svo við getum farið að bóka okkur á árshátíðir og brúðkaup ofl.

Kvöldið í kvöld verður nú bara rólegt, maður fer líklega bara snemma heim úr vinnunni, leggur sig fram að kvöldmat og horfir síðan á Meistarann. Ætli maður reyni svo ekki bara að fara snemma í háttinn, borgar sig að reyna að hvíla sig svo maður fari ekki leggjast í þessa flensu sem allir er að þjás og kveljast af þessa dagana.

Pís Át
VilliKötturinn

miðvikudagur, febrúar 08, 2006



Jæja jamm,

Nýr dagur og ný tækifæri í dag. Ég lenti dálítið skemmtilegu atviki í gær sem mig langar að segja ykkur stuttlega frá. Eins og flestir sem þekkja mig vita er ég mikill dellu- og græjukall og ein af mínum nýjustu græjum er flotta IPAQ lófavélin mín með innbyggða GSM símanum. Í gærmorgun þegar ég var nýkomin til vinnu var ég að fara að skella mér í smá klósettferð (að gera nr. 2 fyrir áhugasama) og er það viðtekin venja að spila smá Solitaire á meðan á athöfninni stendur þannig að ég hélt á lófavélinni um leið og ég opnaði klósettið. En það vildi ekki betur til en svo að þegar ég opnaði postulínið missti ég lófavélina beint á bólakaf. Vitaskuld varð mér brugðið og ég skellti hendinni í skálina og náði græjunni uppúr, reif batteríið strax úr og kláraði síðan nr. 2. Þegar ég hafði lokið við losunina hófst þurrkunarferlið sem stóð yfir heilann sólarhring, ég byrjaði á að láta leka úr vélinni í pappír og lét hana síðan standa fyrir framan hitablásara í einhvern tíma. Í morgun kom svo stóra stundin...... Skildi græjan virka eftir þessa svaðilför ??? Ég skellti rafhlöðunni í IPAQ'inn og bað til Guðs að allt væri nú í lagi, og viti menn fallega HP merkið birtist og græjan ræsti sig í rólegheitum. Semsagt allt í lagi með gaurinn og varð honum vonandi ekki meint af þessi volki.

Dagurinn í dag verður með hefðbundnu sniði, fyrir utan að í kvöld er náttúrulega hið stórkostlega Konukvöld Létt 96.7 og erum við í tríóinu Tóbías að spila og syngja á göngum Smáralindarinnar á meðan konurnar fá brjálæðiskast í búðum. Þetta er vissulega verðugt og spennandi verkefni fyrir þetta nýstofnaða band og verður gaman að sjá hvernig viðtökur við drengirnir fáum frá æstum lýðnum.

Ekki meira að sinni,
VilliKötturinn

þriðjudagur, febrúar 07, 2006

Jæja hér ætla ég að byrja að blogga, er ekki alveg að fíla blog.central.is það er eitthvað rugl í gangi þar. Bloggið mitt var alltaf að fyllast af einhverjum vafasömum commentum frá einhverjum sem ég þekki ekki neitt. Veit ekki hversu duglegur ég verð að blogga en maður verður nú að minnsta kosti að eiga eitthvað blogg ekki satt ;)

Fyrir áhugasama þá er ég byrjaður í einskonar tríói með Jóni Sig, eða Fimmhundruðkalli eins og margir þekkja hann úr Idolinu, og topp náunga sem heitir Ásgeir. Okkar fyrsti opinberi "konsert" verður á morgun miðvikudagskvöld á konukvöldi Létt 96.7. Virkilega spennandi að sjá og heyra hvernig það kemur út. Blogga ekki meira að sinni, sjáumst síðar.

VilliKötturinn