mánudagur, febrúar 27, 2006


Varúð ! Það er svo hált, og vesenið útum allt !!

Vaknaði í morgun og það var glampandi sólskin yfir borginni okkar fallegu. Skellti mér í sturtu og hélt svo af stað í vinnuna. Þegar ég kom út sá að bíllinn var þakinn í frosti, ekkert óvenjulegt á þessum árstíma....ég hófst handa við að skafa og það gekk vel með hliðarrúðurnar en vááááá ég hélt ég yrði marga daga að skafa framrúðuna á bílnum mínum, skafan var ekkert að bíta á frostinu. Eftir 1o mínútna hamagang og svita gat ég loksins lagt af stað í vinnuna.

Ég ætla að vona að þið hafið ekki misst af American Idol í gærkvöldi, Paris litla er stórkostleg söngkona !!! Bara 17 ára og stendur öllum öðrum söngkonum framar þetta árið. Í kvöld eru svo strákarnir að syngja, hlakka ótrúlega mikið til að sjá hvernig þeir munu standa sig.

Ég kláraði flísalögnina endanlega um helgina, þ.e. lakkaði flísarnar þannig að nú er bara að taka vaskana á baðinu niður af veggnum og saga borðplötuna í tvennt, útbúa síðan eldhúsvaskinn og festa uppá vegginn. Svo er spurning hvort maður fari ekki að gera eitthverjar ráðstafanir með vegginn, þyrfti eiginlega að fá einhvern OFURSMIÐ til að kíkja í kaffi og koníak og gefa mér ráðleggingar með hvernig sé best að útfæra hann ;)


Yfir og Út
VilliKötturinn

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

áttu starbuckskaffi , ofursmiðir drekka ofurkaffi

Oddur sagði...

Starbucks it is, á reyndar eftir að kaupa mér koníakið. Það verður komið á morgun ;)

Nafnlaus sagði...

AHH, rassg#$%/$"&!... aðeins of sein að bjóða fram sérfræðiþekkingu mína í ofursmíði...