Er líða fer að jólum........
Jæja ágætu lesendur, nú fer senn að líða að jólum
eða þannig, það eru 67 dagar til jóla og er ég að komast í jólaskapið. Ég verð að viðurkenna að ég er svolítill jólastrákur og ég byrja yfirleitt mjög snemma að hlakka til jólanna. Ég er einn af þeim sem finnst það bara voða vinalegt að jólaösin í verslunum og verslanakjörnum byrji sem allra fyrst. Mér finnst æðislegt þegar jólaljósin eru sett upp í byrjun nóvember til að létta manni lundina í skammdeginu. Það er bara svo gaman að hlakka til einhvers. Hvað er yndislegra en að eiga góðar stundir í faðmi fjölskyldunnar og skapa góðar minningar.
Nú er nóg komið af jólatali í bili !!! Mér langar að byrja á því að óska öllum Liverpool mönnum hjartanlega til hamingju með 10. sætið í deildinni. Í kvöld mæta mínir menn í Manchester United, FC Copenhagen og ætla ég að fylgjast með leiknum. Á morgun er svo annar af stórleikjum vikunnar á Sýn, Chelsea - Barcelona. Eiður okkar mun án efa setja sinn svip á þennan leik og mun maður stilla sér upp í treyjunni fyrir framan sjónvarpið og horfa á leikinn. Svo ég haldi þessu leiðinlega fótboltatali aðeins áfram þá er seinni stórleikurinn á laugardaginn þar sem Barcelona mætir Real Madrid í beinni á Sýn.
