föstudagur, mars 17, 2006



Jól í mars ????

Jamm það merkilega gerðist á föstudaginn að ég var pantaður sem jólasveinn, nánar tiltekið klukkan 16.00. Tilefnið var að sjálfsögðu gæsun þar sem ég gerði saklausri verðandi brúður þann grikk að mæta á svæðið í jólasveinabúningnum og söng ég fyrir hana ástarlag :D Þetta var bara snilld. Ég var náttúrulega Giljagaur og þóttist vera yfir mig ástfanginn af henni, gekk um fyrirtækið þar sem hún vinnur með sólblóm og hring í hönd og kallaði nafnið hennar í sífellu. Þegar ég kom að vinnustöðinni hennar var hún í símanum og ég fór að segja henni að ég væri kominn til að stöðva það hrikalega atvik sem væri að fara að eiga sér stað, þ.e. að hún væri að fara að giftast einhverjum öðrum. Til að kóróna ástarjátninguna söng ég fyrir hana væmnasta jólalag heimsins sem er "Ég og þú" sem Eiríkur Hauksson og Halla Margrét (held ég) gerðu ógleymanlegt á sínum tíma. Að laginu loknu afhenti ég henni hringinn og bað hana um að giftast mér (Giljagauri), hún var frekar vandræðaleg, enda allir vinnufélagarnir mættir að fylgjast með hvað væri eiginlega í gangi. Þetta er í fyrsta skipti sem ég leik jólasvein og engin börn eru nálægt þannig að þetta var allt öðruvísi tilfinning, ég í rauðum galla með hálfa rollu í smettinu að leika jólasvein fyrir fullt af konum sem vita allar að ég er bara einhver hálfviti í búning !!!

Annars var helgin bara nokkuð góð, ég og pabbi kláruðum að reisa grindina fyrir millivegginn sem skiptir upp baðherberginu og eldhúsinu og er þá næsta verkefnið líklega að klæða vegginn og fá rafvirkja til að græja rafmagnið fyrir eldavélina. Semsagt allt að verða klárt. Væri gaman að geta haldið Eurvision samkvæmi í kláraðri íbúð, kemur í ljós hvort maður nái því. Á laugardagskvöldið fórum við Emil heim til Söru systur þar sem við systkinin ásamt Pétri frænda spiluðum Texas Holdem poker fram á rauða nótt, gríðarlega fjörugt kvöld á ferðinn þarna. Rúsínan í pylsuendanum var svo frábær samkoma í gærkvöldi þar sem undur og stórmerki áttu sér stað í mínu lífi.

Yfir og út,
VilliKjettann

sunnudagur, mars 12, 2006


Vávávávává !!!

Ég var á geðveikustu tónleikum sem ég hef farið á í langann tíma í kvöld. Við Emil bróðir skelltum okkur á The Bad Plus sem er framúrstefnulegt Jazz tríó frá Bandaríkjunum, þar hittum við Þorra, Grétar og Jón Bónda sem að sjálfsögðu láta sig ekki vanta á þvílíka stórviðburði. Það er alveg óhætt að fullyrða það að við urðum vitni að einum magnaðasta hljóðfæraleik sem sést hefur hér á landi. Þeir spiluðu mestmegnis lög af tiltölulega nýútkominni plötu sinni sem heitir "Suspicious Activity" mæli algjörlega með henni fyrir alla þá sem kunna að meta góðann Jazz. Mér fannst þeir góðir áður en ég fór á þessa tónleika en eftir að hafa séð þá með eigin augum sér maður hvað þessir menn eru rosalega færir, trommarinn fór gjörsamlega hamförum ég hef aldrei séð eins hratt trommusóló eins og maðurinn tók í einu aukalaginu í lokin. Bassaleikarinn og píanóleikarinn eru líka algjöri snillingar, hraðinn á þessum mönnum er ótrúlegur og tónsmíðarnar ekki síðri. Það var líka einstaklega gaman að heyra þá taka "Human Behavior" eftir Björk okkar og svo "Flim" eftir Aphex Twin, Nirvana smellinn "Smells Like Teen Spirit" og Lagið úr Chariots of fire. Það er einhvernveginn ekki hægt að lýsa þessari upplifun þú verður eiginlega að hafa verið þarna til að skilja hversu rosalegir þessir tónleikar voru. Vona að þessir menn komi aftur til landsins eins og þeir sögðu, þá er bara um að gera fyrir þig lesandi góður að ná þér í miða á þessa rosalegu menn !!

Yfir og út,
VilliKötturinn