Sæl veriði elskurnar mínar. Það er aldeilis orðinn langur tími síðan
ég bloggaði síðast, spurning hvort maður fari eitthvað að reyna að taka sig á í þessu. Ég var að horfa á fyllingu Hálslóns á Vísi.is áðan, þetta er alveg magnað mannvirki þessi stífla. Ég hef eiginlega ekki myndað mér almennilega skoðun á þessu, ég held að ég sé einn af þeim sem horfir á þetta útfrá byggðarsjónarmiðunum þannig að ég er eiginlega bara sáttur við þessa framkvæmd að mestu leyti. Ég set samt smá spurningamerki varðandi framtíð þessa alls, eins og ég hef td. heyrt að hálslónið verði orðið fullt af drullu eftir 60 ár og þá verði ekki lengur hægt að nota þessa virkjun. Eins hafa menn velt fyrir sér hver hin raunverulegu áhrif á svæðið fyrir austan muni verða, þegar öllum framkvæmdum verður lokið hverfur allur þessi fjöldi vinnumanna í burtu og við tekur 450 manna álver sem þarf að reyna að manna með fólki af svæðinu. Efast stórlega að það náist og því mun þetta líklega fyllast af vinnuþyrstum Pólverjum sem eru orðnir þreyttir á að skúra undan okkur skítinn. En eins og ég segi þá vil ég reyna að horfa á björtu hliðarnar á þessu máli og vona innilega að þetta eigi eftir að blessast allt saman á endanum. Álverið á eftir að skila miklu fyrir austfirðinga og nærsveitamenn. Ég er samt sem áður þeirrar skoðunar að ég vil alls ekki fleiri álver á Íslandi. Ég er ansi hræddur um að nú sé komið nóg og að við ættum alvarlega að fara að reyna að finna einhverja aðra aðferð til að skapa atvinnu á landsbyggðinni. Það verður ekkert sérstaklega gaman ef við erum með öll egginn í sömu körfunni og allt okkar efnahagslíf sveiflast upp og niður eftir því hvernig álverð í heiminum er.En nóg um álpappír og þess háttar, ég er að fá nýtt pókerspilapeningasett í hendurnar í kvöld og ræð ég mér ekki af spenningi vegna þessa. Svo stendur til að halda mót heima hjá mér á mánudaginn þar sem nýju "chipparnir" verða vígðir við hátíðlega athöfn :)
Heimahópurinn fer hægt af stað þennan veturinn og höfum við verið heldur fáliðaðir síðustu 3 skipti. Nýr meðlimur bættist í hópinn á mánudaginn, hann heitir Alex og er kærastinn hennar Hönnu frænku. Hann býr í sömu götu og ég sem er nokkuð hentugt. Böddi og Pétur eru báðir farnir í nám erlendis, Pétur verður um nokkurra ára skeið í San Fran og Böddi fór til Schweitsch að lesa Biblíuna og höstla sæta(nn) Texas búa ;)
Ætla að skella mér á mót í Vatnaskógi um helgina, þar sem ég mun leiða lofgjörð ásamt Jasseri, Ingu Dóru og vonandi einhverjum fleiri.
Ætla að fara að vinna,
Yfir og út,
VilliKötturinn
