
Jæja jamm,
Nýr dagur og ný tækifæri í dag. Ég lenti dálítið skemmtilegu atviki í gær sem mig langar að segja ykkur stuttlega frá. Eins og flestir sem þekkja mig vita er ég mikill dellu- og græjukall og ein af mínum nýjustu græjum er flotta IPAQ lófavélin mín með innbyggða GSM símanum. Í gærmorgun þegar ég var nýkomin til vinnu var ég að fara að skella mér í smá klósettferð (að gera nr. 2 fyrir áhugasama) og er það viðtekin venja að spila smá Solitaire á meðan á athöfninni stendur þannig að ég hélt á lófavélinni um leið og ég opnaði klósettið. En það vildi ekki betur til en svo að þegar ég opnaði postulínið missti ég lófavélina beint á bólakaf. Vitaskuld varð mér brugðið og ég skellti hendinni í skálina og náði græjunni uppúr, reif batteríið strax úr og kláraði síðan nr. 2. Þegar ég hafði lokið við losunina hófst þurrkunarferlið sem stóð yfir heilann sólarhring, ég byrjaði á að láta leka úr vélinni í pappír og lét hana síðan standa fyrir framan hitablásara í einhvern tíma. Í morgun kom svo stóra stundin...... Skildi græjan virka eftir þessa svaðilför ??? Ég skellti rafhlöðunni í IPAQ'inn og bað til Guðs að allt væri nú í lagi, og viti menn fallega HP merkið birtist og græjan ræsti sig í rólegheitum. Semsagt allt í lagi með gaurinn og varð honum vonandi ekki meint af þessi volki.
Dagurinn í dag verður með hefðbundnu sniði, fyrir utan að í kvöld er náttúrulega hið stórkostlega Konukvöld Létt 96.7 og erum við í tríóinu Tóbías að spila og syngja á göngum Smáralindarinnar á meðan konurnar fá brjálæðiskast í búðum. Þetta er vissulega verðugt og spennandi verkefni fyrir þetta nýstofnaða band og verður gaman að sjá hvernig viðtökur við drengirnir fáum frá æstum lýðnum.
Ekki meira að sinni,
VilliKötturinn

Engin ummæli:
Skrifa ummæli