
Lítill fugl.....
Afþví að ég er svo grannur og á svo mikinn pening skellti ég mér á McDonalds um daginn. Þegar við Allý vorum að snæðingi í bílnum komu nokkrir þrestir og gerðu sig líklega um að koma inn í bílinn til að gæða sér á frönskum kartöflum. Hér er skemmtileg mynd sem ég náði af einum þeirra með IPAQ klósettkafaranum mínum ;)
Magnaður Kompáss þáttur á Stöð 2 á sunnudaginn. Ótrúlegt hversu margir fullorðnir karlmenn eru til í að perrast í og jafnvel sofa hjá 13 ára stelpum. Skora á alla að horfa á þennann þátt á VefTíví Vísis. Mér finnst þetta frekar óhugnalegur þáttur sem fær mann til að hugsa um netnotkun barna sem maður þekkir. Mér finnst að lögreglan ætti að hafa heimildir til að gera álíka kannanir til að fæla svona menn frá þessum athöfnum. Maður veit aldrei hvaða menn eru líklegir til að fara útí svona viðbjóð !!!
Yfir og Út
VilliKötturinn

1 ummæli:
mér fannst þú nú soldið sætur þegar þú varst 13 hehe...
en að öllu gamni slepptu þá er þetta náttúrulega viiðbjóður og óeðli
Skrifa ummæli