
Monday, monday....
Í dag er mánudagur og ég verð að segja að maður er bara nokkuð þreyttur í dag, en ég hef ekki ennþá fengið mér kaffi þannig að ég á eftir að hressast ;)
Við fórum í ammælisveislu til Grétars á föstudagskvöldið að loknu Idolinu, btw. rosalega var Alexander flottur í Idolinu !! Splittið í endann var hrein snilld !!! En aftur að afmælinu, í boði voru dýrindis veitingar sem Erla hafði útbúið af sinni einskæru snilld, að sjálfsögðu fengum við að heyra "Bíllinn og Bensíndælan" sem er alltaf lesin á hverju árið í veislunni hans Grétars.
Á laugardaginn fórum við að hjálpa Óla og Lísu að flytja, fínasta íbúð sem þau eru komin í. Vona að þeim eigi eftir að líða vel á nýja heimilinu sínu. Svo var náttúrulega Eurovision, rosalega voru mörg góð lög í keppninni þetta ár. Mér fannst lagið hennar Regínu lang lang best og hálfgerð synd að hún sé ekki að fara út. Samt er ég alveg viss um að Sylvía Nótt á eftir að vekja lukku, allavegana ef Evrópubúar fatta djókið :) Ég er soldið stressaður að litlar stelpur sem eru farnar að líta upp til hennar haldi að hún sé alvöru og að svona eigi maður bara að hegða sér, alls ekki góð fyrirmynd hér á ferðinni. Þá er Birgitta Haukdal skömminni skárri :
Yfir og Út skiluru !!
VilliKötturinn

3 ummæli:
sammála þér Oddur varðandi Silvíu Nótt sem "fyrirmynd" eða "ekki fyrirmynd".
Jamm ég sá hana í fréttum á NFS að þykjast vera blindfull í partíi á hótelherbergi, búin að rústa öllu og viss ekkert af sér. Þetta er sú sem litlar stelpur segjast dýrka.
hehe ég lít upp til hennar, sérstaklega þegar hún er í g-strengnum....hehehehehe
annars fannst mér flest lögin frekar léleg en regínu lag var mjög flott, styð samt silvíu á toppinn
Skrifa ummæli