Hvað er að gerast ??Ég veit ekki alveg hvað gerðist í síðustu færslu en stundum bara gerist eitthvað og ég get ekki hætt að skrifa. En að minnsta kosti þá er allt í góðu þessa dagana, fórum í kaffi til Óla og Hrefnu í gær. Rosa gaman að koma í heimsókn til þeirra hjóna, Óli er alltaf eitthvað að dunda sér við að taka upp með MBoxinu sínu ég verð að fara að kaupa mér þennann blessaða mæk sem ég er búinn að vera að bíða eftir að eiga pening fyrir svo maður geti nú farið að taka eitthvað af viti upp. Tríóið tobiaz stefnir á að taka demo upp á næstu dögum, aldrei að vita nema maður fari að reyna að koma einhverju efni í spilun í útvarpi. Kiddý systir er að taka upp vögguvísudisk þessa dagana og er hægt að hlusta á smá brot af honum á síðunni hennar http://kiddythor.tk Lofar bara mjög góðu og verður gaman að heyra hvernig restin mun hljóma.
En nú er kominn tími til að borða hest,
VilliKötturinn

1 ummæli:
Æ krúttið mitt, takk fyrir hrósið :o)
Skrifa ummæli