Hor slef og hóstasaft
Í dag er þriðji og vonandi síðasti dagurinn sem ég eyði heima með nefrennsli og klósettrúllu í
hönd. Við hjónin erum búin að vera að snýta hvort öðru og hóst í skiptis, hefur verið sérstaklega góður tími :) Það eru eflaust fleiri í sömu sporum og við þar sem hin alræmda haustflensa er að láta kræla á sér þessa dagana. Um helgina fara tengdaforeldrar mínir til Bandaríkjanna og verðum við Allý ábyrg fyrir bræðrum hennar á meðan þau eru úti, hehehehehe. Ég ætla að kenna þeim eitthvað ógeðslegt sem þeir geta notað þegar mamma og pabbi koma heim. Nei ég segi svona maður verður nú að reyna í veikum mætti að vera þeim góð fyrirmynd, ég á bara svo erfitt með að hemja barnaskapinn í mér þegar ég er innan um yngri menn. Jasser getur vitnað um það eftir skemmtilegt mót um síðustu helgi. Ég fékk að upplifa það að vera unglingur aftur í smástund, ég var næstum búinn að gleyma því hvað það er gaman. Ég svaf líklega minnst af öllum á þessu móti þar sem ég lá á spjalli við herbergisfélaga mína langt fram eftir öllu og þurfti náttúrulega að vera ábyrgur og mæta á góðum tíma í morgunmat ;)
hönd. Við hjónin erum búin að vera að snýta hvort öðru og hóst í skiptis, hefur verið sérstaklega góður tími :) Það eru eflaust fleiri í sömu sporum og við þar sem hin alræmda haustflensa er að láta kræla á sér þessa dagana. Um helgina fara tengdaforeldrar mínir til Bandaríkjanna og verðum við Allý ábyrg fyrir bræðrum hennar á meðan þau eru úti, hehehehehe. Ég ætla að kenna þeim eitthvað ógeðslegt sem þeir geta notað þegar mamma og pabbi koma heim. Nei ég segi svona maður verður nú að reyna í veikum mætti að vera þeim góð fyrirmynd, ég á bara svo erfitt með að hemja barnaskapinn í mér þegar ég er innan um yngri menn. Jasser getur vitnað um það eftir skemmtilegt mót um síðustu helgi. Ég fékk að upplifa það að vera unglingur aftur í smástund, ég var næstum búinn að gleyma því hvað það er gaman. Ég svaf líklega minnst af öllum á þessu móti þar sem ég lá á spjalli við herbergisfélaga mína langt fram eftir öllu og þurfti náttúrulega að vera ábyrgur og mæta á góðum tíma í morgunmat ;)Um helgina er spennandi landsleikur og verður maður náttúrulega að gefa sér góðan tíma til að horfa á hann. Ég treysti á að Íslendingar sigri Letta í Lettlandi, áfram Ísland.
Jæja ég nenni bara ekki að blogga meira,
VilliKjettan

3 ummæli:
Áfram Ísland! Áfram Emil! hehe
Gaman að sjá þig aftur að störfum í bloggheimum!
Takk fyrir samveruna á góðu móti.
Bleeeeessar. Pétur hér. Gaman að sjá að einhver er að blogga. Leitt með flensuna, það er eitthvað að ganga hér líka, ætla rétt að vona að ég sleppi :O Annars gengur allt eins og í sögu.. Later dude,
Petur Frisco
Skrifa ummæli