Konukvöldið var snilld og held ég að við drengirnir í tríóinu tobiaz höfum vakið mikla lukku meðal viðstaddra. Allý og Helga smelltu nokkrum myndum og smá videoi af okkur drengjunum, aldrei að vita nema að það fái að líta dagsins ljós á veraldarvefnum. Nú þurfum við strákarnir bara að halda áfram að æfa okkur og safna að okkur slatta af lögum svo við getum farið að bóka okkur á árshátíðir og brúðkaup ofl.
Kvöldið í kvöld verður nú bara rólegt, maður fer líklega bara snemma heim úr vinnunni, leggur sig fram að kvöldmat og horfir síðan á Meistarann. Ætli maður reyni svo ekki bara að fara snemma í háttinn, borgar sig að reyna að hvíla sig svo maður fari ekki leggjast í þessa flensu sem allir er að þjás og kveljast af þessa dagana.
Pís Át
VilliKötturinn

1 ummæli:
já ég er búinn að fá hljóðdæmi frá konukvöldinu og verð að segja að þetta hljómaði bara mjög vel, verður gaman að vita hvort einhver ykkar verður einhverntímann kosinn kynþokkafyllsti karlmaður íslands
trölli
Skrifa ummæli