föstudagur, febrúar 10, 2006


Það er Idol dagur í dag og ég hlakka dáldið til að sjá og heyra hvernig Alexander stendur sig. Lítill fugl hvíslaði að mér að þemað í kvöld sé fæðingarár keppenda og mun Alexander víst syngja lag eftir Toto, verður gríðarspennandi að sjá það, því ég veit að kallinn mun höndla það vel. Ætli maður verði ekki að reyna að elda eitthvað gott í kvöldmatinn til að borða með Idolinu, pizzu eða eitthvað álíka.

Á morgun verður svo haldið áfram með flísalagningu á baðeldhúsinu okkar. Það miðar mjög vel áfram, pabbi er náttúrulega snillingur þegar að einhverju svona snýr. Ég býst við að við klárum lagninguna á morgun. Síðan er Sara systir með samkvæmi í Austurtúninu annað kvöld, verður áreiðanlega stuð á þeim bæ. Veit ekki hvort ég nenni að blogga eitthvað um helgina en það verður bara að koma í ljós.

Yfir og Út,
VilliKötturinn

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

TOTO rokkar, án efa basta lagið sem verður flutt í kvöld (veit ekki ennþá hvort þetta verði besti fluttningurinn). Gott að heyra að það gangi vel að græja baðið, þú bara hefur samband þú þarft aðstoð (eða úttekt hehe)
yfir og út

Álfheiður sagði...

Ég kíki við annað slagið, ef þig langar að vita hverjir droppa hér inn.
Kveðjur frá Egilsstöðum