Vetur, sumar, vor eða haust ??
Já það er aldeilis undarleg veðráttan þessa dagana svo maður bloggi nú aðeins um jafn
skemmtilegann hlut og veðrið eða eyrnarpinna eða eitthvað álíka ;) Annars er bara allt gott að frétta af okkur hjónakornunum þessa dagana. Við erum komin með dvergaeldavél og gasgrill þannig að það fer að styttast í að maður geti boðið vinum og vandamönnum í matarboð á Álftanesinu. Eina sem vantar núna er hurð á klósettið :D Þekkt vandamál í íbúðum sem við Allý höfum búið í, ýmist situr fólk inní stofu á klósettinu eða eldhúsi það er allavegana aðalatriðið að hafa enga hurð. Ég er búinn að rífa golfsettið fram að nýju og eru massívar æfingar hafnar. Búinn að fara 3svar í bása í síðustu viku sem er 3svar sinnum oftar en í allan vetur.Maður er farinn að hlakka mikið til HM og er ég búinn að smíða gluggahlera fyrir alla glugga í stofunni, svo það komist örugglega ekki einn einasti sólargeisli inn til að skemma myndina frá skjávarpanum. Svo verður starfrækt HM krá á heimili mínu á meðan á öllum ósköpunum stendur, Jón Örn og Óli munu ábyggilega nánast búa hjá mér (Óli er búinn að kaupa sæti í stúkunni) og hver veit nema heiðursmenn eins og Þorri og Gismo láti eitthvað sjá sig líka. Eitt er allavegana víst að fótboltinn verður í hávegum hafður og ekki víst að greyið Allý eigi eftir að fíla þetta mikið :)
Yfir og út,
VilliKötturinn (í Brasilíu sokkum og nærbuxum)

0 comments:
Sendu inn athugasemd