
Laugardagur til leti ;)
Í dag er svo sannarlega búinn að vera letidagur, ég tók reyndar til og ryksugaði en það er nú svosem ekki mikið. Annars er ég bara búinn að vera að spila Póker og horfa á Family Guy í tölvunni. Yndislegt veður búið að vera í dag, ég leyfði Móglí að fara útá svalir áðan og hann fílaði það bara nokkuð vel. Sara systir mín var að kvart yfir því að ég talaði aldrei um hana á þessu bloggi. Mig langar bara að segja að hún er yndislega falleg og skemmtileg systir sem er gott að eiga að.
Mamma er að fara að grilla "sveinköd" í kvöld þannig að ég ætla að henda mér í sturtu og hreinsa af mér laugardagsskítinn :)
Yfir og Út
VilliKötturinn bróðir Söru

2 ummæli:
Sammála þér með hana Söru, hún er bæði falleg og skemmtileg og full ástæða til að nefna það í bloggi ;)
og svo er hún líka fyrirtaks sunnudagaskólakennari!!!!
Skrifa ummæli