
Hvar er boltinn ?
Þessi vika er búin að vera rosalega bizzý hjá kallinum, ég er ekki búinn að vera heima hjá mér nema bara á nóttunni alla vikuna og í kvöld verður sama sagan. Við drengirnir í tobiaz erum að fara að hittast heima hjá honum Jóni Sig til að hefja upptökur á litlu demoi sem verður reynt að gera síðan eitthvað við í framhaldinu. Ætli fyrstu skrefin verði ekki að fara með það í Skífuna og reyna að fá þá til að gefa eitthvað efni út.
Í gærkvöldi vorum við Gústi Steindórs og Ragnar uppí kirkju að vinna í hljóðkerfismálunum, það er allt að færast í betra horf í þeim málum þessa dagana. Við Ragnar vorum að koma bassaboxunum fyrir í sviðinu á meðan Gústi var að klæða nýju tækjaaðstöðuna sem verður sett upp aftast í salnum. Á næstu dögum verður svo fjárfest í nýjum hátölurum sem verða festir í loftið í salnum og á þetta allt saman eftir að bæta hljóminn á samkomum svo um munar.
Ætli maður verði ekki bara heima hjá sér annað kvöld og horfi á Idol stjörnuleit og slaki á. Pffffffffffff....................................
°Geisp°
VilliKötturinn

4 ummæli:
Isss pisss leiðindarhúsfundur að trufla verðandi frægð okkar í tobiaz-i í kvöld .. Sunnudagurinn er dagurinn sem allt gerist ..
Hehe, jamman.... ;)
Oddur eftir 50 ár:
já krakkar, ég var við það að verða einn frægasti og fremsti söngvari íslandsögunnar , EF þessi fj..... húsfundur hefði ekki verið
Hehe... góður Jónki Tröll!!! Annars held ég að það sé ekki nokkur hætta á því... ég held það verði frekar „Hvað segið þið krakkar mínir, týnduð þið svifdisknum ykkar... getið þið notað svona gullplötu?“
Skrifa ummæli