mánudagur, apríl 03, 2006


The beautiful people

Já ég hef verið að fá góð viðbrögð við myndina af hinum íðilfagra David Hasselhoff sem ég lét fylgja síðasta pósti. Af þeirri ástæðu hef ég ákveðið að halda áfram að senda inn myndir af fallegu fólki með póstunum mínum ;)

Helgin var sú rólegasta, við Allý skelltum okkur á útsölumarkað á föstudaginn þar sem við fundum eitt stk. frakka og eina úlpu á mig á 3000 kall stykkið. Laugardagurinn fór vel af stað ég ræsti Allý um hádegið og við fórum í "slökunarferð" í Kringluna, þar sem ég er dáldið brenndur eftir hurðunina í síðustu viku þá hófst ferðin á því að taka mynd af númeraplötum bílanna sem voru lagðir sitthvoru megin við bílinn okkar :) Smökkuðum í fyrsta skipti (believe it or not) svona Crépes pönnukökur fylltar með allskonar gúmmilaði, kom bara nokkuð vel út.

Annars er "mixer" aðstaðan í kirkjunni að verða klár, Gústi hefur lokið við smíðina að mestu leyti og verða nýju hátalarnir ásamt nýjum skjávarpa hengdir í loftið á miðvikudagskvöldið.

Ekkimeiraíbili
VilliKötturinn

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

skil það svo sem vel að þú viljir ekki minnast á leiki helgarinnar. hvernig fór það aftur , vann liverpool eða barcelona