föstudagur, mars 17, 2006



Jól í mars ????

Jamm það merkilega gerðist á föstudaginn að ég var pantaður sem jólasveinn, nánar tiltekið klukkan 16.00. Tilefnið var að sjálfsögðu gæsun þar sem ég gerði saklausri verðandi brúður þann grikk að mæta á svæðið í jólasveinabúningnum og söng ég fyrir hana ástarlag :D Þetta var bara snilld. Ég var náttúrulega Giljagaur og þóttist vera yfir mig ástfanginn af henni, gekk um fyrirtækið þar sem hún vinnur með sólblóm og hring í hönd og kallaði nafnið hennar í sífellu. Þegar ég kom að vinnustöðinni hennar var hún í símanum og ég fór að segja henni að ég væri kominn til að stöðva það hrikalega atvik sem væri að fara að eiga sér stað, þ.e. að hún væri að fara að giftast einhverjum öðrum. Til að kóróna ástarjátninguna söng ég fyrir hana væmnasta jólalag heimsins sem er "Ég og þú" sem Eiríkur Hauksson og Halla Margrét (held ég) gerðu ógleymanlegt á sínum tíma. Að laginu loknu afhenti ég henni hringinn og bað hana um að giftast mér (Giljagauri), hún var frekar vandræðaleg, enda allir vinnufélagarnir mættir að fylgjast með hvað væri eiginlega í gangi. Þetta er í fyrsta skipti sem ég leik jólasvein og engin börn eru nálægt þannig að þetta var allt öðruvísi tilfinning, ég í rauðum galla með hálfa rollu í smettinu að leika jólasvein fyrir fullt af konum sem vita allar að ég er bara einhver hálfviti í búning !!!

Annars var helgin bara nokkuð góð, ég og pabbi kláruðum að reisa grindina fyrir millivegginn sem skiptir upp baðherberginu og eldhúsinu og er þá næsta verkefnið líklega að klæða vegginn og fá rafvirkja til að græja rafmagnið fyrir eldavélina. Semsagt allt að verða klárt. Væri gaman að geta haldið Eurvision samkvæmi í kláraðri íbúð, kemur í ljós hvort maður nái því. Á laugardagskvöldið fórum við Emil heim til Söru systur þar sem við systkinin ásamt Pétri frænda spiluðum Texas Holdem poker fram á rauða nótt, gríðarlega fjörugt kvöld á ferðinn þarna. Rúsínan í pylsuendanum var svo frábær samkoma í gærkvöldi þar sem undur og stórmerki áttu sér stað í mínu lífi.

Yfir og út,
VilliKjettann

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

er hægt að panta einkadans hjá sveinka????

Nafnlaus sagði...

ekki gefa honum einkadans........hann hefur ekki gott af því!
kv. helgan

Oddur sagði...

Ef þú verður óþægur þá er aldrei að vita nema að sveinki splæsi á þig einum einkadansi eitthvert kvöldið ;)

agusta sagði...

Mig langar að heyra meira um þessi undur og stórmerki. Er það eitthvað sem þú mundir vilja tjá þig um hér... stundum er það þannig og stundum er Guð að vinna eitthvað sem maður hefur bara fyrir sjálfan sig... en allt í lagi að spyrja, mig þyrstir eftir að fá að vita hvað Guð er að gera... Hann er einmitt að vinna mikið í mér, svo að gaman að heyra af þér líka vinurinn minn.

Gangi þér vel áframhaldandi og megi Guð halda áfram að vinna undur og stórmerki í lífi þínu og lífi ykkar hjóna saman!

Kær kveðja Ágústa

Nafnlaus sagði...

eru þið hjónin eitthvað saman í þessu jólasveinadæmi????