föstudagur, mars 31, 2006


AHA......

Föstudagur er alltaf föstudagur, skiptir ekki máli hvort að það sé búið að bóna bílinn eða ekki. Hvað er það með fólk sem rekur hurðina á bílnum sínum í bílinn manns og lætur mann ekki vita ? Einhver yndislegur aðili hefur rekið hurðina svo hressilega í fína Skodann okkar Allýar að það stórsér á honum :( Ég er ekkert alveg sáttur við þetta því ég veit það fyrir víst að tryggingarfélögin eru hætt að lækka bónusa hjá fólki sem lendir í einhverjum svona smáóhöppum, þannig að sá aðili sem lendir í þessu tapar engu á að láta vita. Þar sem bíllinn okkar er sanseraður þarf að heilsprauta þann hluta sem er rispaður og mun svona viðgerð ef maður vill að vel sé gert, ábyggilega kosta í kringum 100þús. Þar sem ég á ekki 100þús á reiðum höndum, mun ég líklega bletta í þetta sjálfur og er það ekki falleg viðgerð, en það verður bara að loka fyrir rispuna svo þetta fari ekki að ryðga.

Síðan ég bloggaði síðast hefur mikið gengið á í lífinu, við drengirnir í tobiaz spiluðum á árshátíð einstakra barna á laugardagskvöldið og skelltum okkur svo beint uppá Skaga þar sem við skemmtum á meðan keppendur í Ungfrú Vesturland brugðu sér úr baðfötum í kvöldkjóla :D Dáldið spes andrúmsloft á svona fegurðarsamkeppni, frekar skrítið að sjá gelluna í bíkiníinu koma hlaupandi "Ég verð bara að fá mér sígó" svo stendur hún á baðfötunum og tottar Winston í dyragættinni. Ekki beint falleg sjón, en það er víst með þetta eins það að hafa hægðir, sætar stelpur gera þetta víst allt líka ;) Í kvöld áttum við svo að vera að spila á árshátíð en það klikkaði eitthvað vegna þess að henni var frestað. Við náðum að klára fyrsta grunninn að lagi fyrir Demoið okkar og stefnum við að því að hittast á sunnudaginn og reyna að klára 1-2 grunna í viðbót. Semsagt nóg að gera hjá tobiaz þessa dagana.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hvað er málið með myndina !! Nakinn David Hasselhoff með krumpudýr lítur EKKI vel út ;o)

Nafnlaus sagði...

mér finnst hann geðveikt sætur sko. Sara þú hefur bara ekki horft nóg á "strandverði" til að kunna að meta hann, annað en við oddur

Oddur sagði...

Þetta varð allavegana til þess að þú commentaðir í fyrsta skipti :D

Nafnlaus sagði...

sigríður var sammála söru, spurði mig hvers vegna ég væri að skoða svona myndir hehehehehehehehehehehe
ég náttúrulega kenndi dóttur minni allt sem ég vissi um kynþokka og notaði að sjálfsögðu Sylvíu nótt og Daviv Hasselhoff til að skýra mitt mál heheheheheh
Annars takk fyrir leikina , liverpool rúlar

Oddur sagði...

Það lekur náttúrulega kynþokkinn af honum vin okkar Davíð ;)