mánudagur, apríl 24, 2006


Barcelona Beibí !!

Jæja jæja gott fólk nú er þetta allt saman að skella á. Við hjónin erum að fara ásamt vinnufélögum mínum til Barcelona á fimmtudaginn næsta. Verður bara snilldarferð, ætlum að nýta tímann vel og skoða öll helstu kennileyti borgarinnar, Sagrada Familia, Parc Guell og ábyggilega einhver söfn og fleira. Við ætluðum að skella okkur á leik með Barcelona á sunnudeginum en honum hefur verið flýtt á laugardagskvöldið sem er sama kvöld og árshátíð Hugar verður þannig að það verður því miður ekkert af því. Ætli maður endi þá ekki í einhverri verslunarmiðstöðinni að "skoða" eitthvað sniðugt. Annars var ég í upptökum á skemmtiatriði Viðskiptalausnasviðs, sem er deildin sem ág vinn í, á laugardaginn og þetta er allsvakalegt atriði. Verður án efa glæsilegasta atriði kvöldsins. Þar sem það hvílir mikil leynd yfir því ætla ég ekkert að segja meira í bili. Við skulum bara segja að atriðið sem ég tók í söngvakeppni framhaldsskóla um árið bliknar í samanburði við Þetta ;)

Annars er hér smá brandari til að útskýra fjarverju mína úr bloggheiminum.

Ég nenni ekki að vera svona bloggari þannig að ég ætla bara aðblogga þegar ég hef eitthvað til að segja frá.

Yfirogútkjellarogkjellingar
VilliKöttur

3 ummæli:

Bryndís sagði...

hehehe...það er líka alveg klassi þegar fólk gerir spes færslu um að það nenni ekki að blogga...til hvers í ósköpunum!! Væntanlega bloggara sjálfum til ama þá...og hefur afar lítið skemmtanagildi fyrir lesendur....mjög dularfullt. En hey skemmtið ykkur í Barcelona....Bið að heilsa beckham

Nafnlaus sagði...

ertu nú alveg hættur að skrifa elsku vinur

Nafnlaus sagði...

já hvað á þetta að þýða enginn færsla í langann tíma , koma svo það er fólk sem vill lesa eitthvað nýtt núna