
Mánudagur til mæðu eða hvað ??
Hvernig leggst eiginlega þessi mánudagur í ykkur góða fólk. Hann leggst eiginlega bara mjög vel í mig. Var ásamt drengjunum í tobiaz í frábærum þætti hjá Hemma Gunn í gær, á Bylgjunni í "N á tali", kom alveg hreint glimrandi út hjá okkur þó ég segi sjálfur frá ;) Þið sem misstuð af þættinum getið hlustað hér : http://veftivi.visir.is/veftivi/main.do?treeId=21014&progId=11085 Við strákarnir komum inn á 26. mínútu. Endilega kommentið á þessa frammistöðu hjá okkur hérna á bloggið.
Annars var helgin bara mjög góð, við pabbi kláruðum að saga allar flísarnar og maður ætlar að reyna að klára að líma þær í kvöld, þetta kemur gríðarlega vel út hjá okkur. Á laugardagskvöldinu fórum við í mat til Þorra og Árdísar og fengum þar grillaðar kjúklingabringur með geðveiku salati og fullt af hvítlauk. Árdís var í hvítlauksmóki allt kvöldið og er pottþétt að allar vampírur heimsins hafa haldið sig í 100 km. fjarlægð frá okkur. Maturinn var hrein og tær snilld og skemmtum við okkur konunglega í góðra vina hópi.
Mamma fór með Söru flughræddu til London áðan. Hún er að fara að skoða skólann sem hún er að öllum líkindum að fara að dvelja í næstu þrjú árin frá og með næsta hausti, hún er að fara að læra "Art Therapy" eða Listmeðferð sem felst í því að láta fólk tjá sínar tilfinningar ofl í gegnum listir. Verður gaman að heyra ferðasöguna frá þeim þegar þær koma aftur.
Eigiði góða viku elsku vinir......
VilliKötturinn

1 ummæli:
Ég hlustaði náttúrulega vel á ykkur , þetta var mjög flott og það kom mér á óvart hvað þið jón passið drulluvel saman. rokk on
helduru að skvísurnar nýti ekki örugglega allann tollinn hehe
Skrifa ummæli